Leiðbeiningar
Undirbúningur
Flötur þarf að vera sléttur og laus við óhreinindi. Fyrir steypt eða flotað gólf er æskilegt að demantsslípa áður en Epoxy Grunnur er settur á.
Blöndun
1:0,7. Blandið 1 hlutum af Epoxy Grunn, efnisþætti A, við 0,7 hluta af Epoxy Grunn, efnisþætti B. Hrærið blönduna í 2 mínútur með því að nota lághraðabor með hræristykki. Skiptið pakkningum ekki upp – ef blöndunarhlutfallið er rangt verður hersla ekki nægilega góð.
Til þynningar á efninu má blanda allt að 10% af epoxy þynni út í blönduna. Fyrir 3kg blöndu má því setja 0,3kg af epoxy þynni.
Málun
Hella þarf blöndunni á flötinn til þess að auka við vinnslutímann. Efnið tekur sig á 15 mínútum í fötunni en vinnslutíminn þegar efnið er komið á flötinn er allt að 40 mínútur.
Byrjað er á því að skafa efninu á flötinn með spartlspaða, gluggasköfu eða einhverju sambærilegu. Svo notað málningarrúllu eftir á. Best er að mála til hægri og vinstri, og svo fram og aftur. Þetta er gert til þess að forðast að fá för eftir rúlluna í gólfið.
Yfirmálun
Þurrktími er almennt háður hreyfingu loftsins, hitastigi og filmuþykkt málningarumferðar. Mála má yfir Epoxy Grunn eftir að það er orðið snertiþurrt. Við 20°C má reikna með að efnið sé snertiþurrt eftir 12 klukkustundir.
Endanlegt álagsþol næst eftir 7 daga herðingu við kjörskilyrði. Lágt hitastig lengir þornunartímann töluvert.