Frí heimsending!
Leiðbeiningar
Undirbúningur
Flötur þarf að vera sléttur og laus við óhreinindi. Fyrir steypt gólf er æskilegt að demantsslípa og grunna flötinn með Epoxy grunn áður en Metallic Epoxy er sett á.
Blöndun
2:1. Blandið 2 hlutum af Metallic Epoxy, efnisþætti A, við 1 hluta af Metallic Epoxy, efnisþætti B. Bætið svo Metallic Powder, efnisþáttur C, út í blönduna eftir þörfum. Til þess að ná sem bestri þekju þarf efnisþáttur C að vera minnst 3% af þyngd efnisþátta A og B. Hrærið blönduna í 2 mínútur með því að nota lághraðabor með hræristykki. Skiptið pakkningum ekki upp – ef blöndunarhlutfallið er rangt verður hersla ekki nægilega góð.
Málun
Eftir að Epoxy grunnurinn hefur verið settur á flötinn og hann orðinn full þurr, er hægt að setja Metallic Epoxy á flötinn. Hella þarf blöndunni á flötinn til þess að auka við vinnslutímann. Efnið tekur sig á 20 mínútum í fötunni en vinnslutíminn þegar efnið er komið á flötinn er allt að 45 mínútur.
Byrjað er á því að skafa efninu á flötinn með spartlspaða eða einhverju sambærilegu. Svo notað málningarrúllu eftir á. Til þess að fá hreyfingu og líf í efnið er hægt að beita óhefðbundnum aðferðum við málunina, með því að t.d. mála með hringlaga hreyfingu.
Til þess að losna við loftbólur sem geta myndast í efninu, er gott að hita efnið upp, t.d. með kósangasi, eftir að það er komið á flötinn.
Ef ekki er óskað eftir háglans áferð, er hægt að mála yfir með PU MG Satin/Matt.
Yfirmálun
Þurrktími er almennt háður hreyfingu loftsins, hitastigi og filmuþykkt málningarumferðar. Mála má yfir Metallic Epoxy eftir að það er orðið snertiþurrt. Við 20°C má reikna með að efnið sé snertiþurrt eftir 12 klukkustundir.
Endanlegt álagsþol næst eftir 7 daga herðingu við kjörskilyrði. Lágt hitastig lengir þornunartímann töluvert.